Saga
The Rolling Stones hefst 1960 þegar Mick Jagger hittir Keith
Richards á brautarstöð í Dartford í
Englandi og þeir taka tal saman þar sem að þeir
höfðu þekkst frá fyrri tíð.
Mick Jagger var með nokkrar blúsplötur undir hendinni
og vöktu þær athygli Keith og komust þeir tveir
að því að þeir voru með sameiginlegan
áhuga á Amerískri Blues tónlist.
Þeir stigu báðir af lestinni í London og héldu
sína leið, Mick í London School Of Economics og
Keith í Sidcup Art College, en þeir höfðu ákveðið
að hittast aftur seinna.
Þeir hófu síðan samstarf í hljómsveit
sem hét Little Boy Blue And The Blue Boys, og seinna þegar
þeir voru staddir á tónleikum með Alexis Korner
Blues Incorporated þá hittu þeir Brian Jones.
Brian Jones var villtur unglingur sem hafði barnað tvær
ungar stúlkur áður en hann var orðinn 16 ára,
hann var mjög hæfileikaríkur ljóshærður
tónlistarmaður sem var undir miklum áhrifum frá
Ameríska Blues gítar goðsögninni Elmore James,
og Brian hafði verið að koma fram einn sem Elmo Lewis.
Mick og Keith byrjuðu að koma fram með Alexis Korner Blues
Incorporated og seinna slógust í hópinn trommari
að nafni Charlie Watts, og Mick gerðist fastur söngvari
hljómsveitarinnar.
Þar sem að Mick, Keith og Brian áttu sameiginlegt
áhugamál þ.e.a.s Ameríska Blues Tónlist,
þá byrjuðu þeir þrír að æfa
saman sem hljómsveit. Þeir fluttu allir saman í
íbúð í Edith Grove í Chelsea hverfinu
í London og seinna buðu þeir Dick Taylor og trommaranum
Tony Chapman að ganga í hljómsveitina og stuttu
eftir það gekk boogie-woogie píanóleikarinn
Ian Stewart til liðs við hljómsveitinna.
Það varð síðan Brian Jones sem stakk upp
á nafninu The Rolling Stones í höfuðið
á lagi eftir Muddy Waters "Rollin Stone Blues"
og þar sem að hinir meðlimir hljómsveitarinnar
gátu ekki komið með neitt betra nafn þá
var þetta nafn ákveðið.
Þeir tóku fljótlega upp demo upptöku og reyndu
að koma henni á framfæri við EMI en þeim
var hafnað þar á bæ.
1962
Árið 1962 höfðu The Rolling Stones farið um
alla London og beðið um að fá að halda tónleika
þar sem að þeir spiluðu aðeins Blues slagara,
en þeim gekk ekki vel að koma sér á framfæri.
Charlie Watts gekk síðan til liðs við hljómsveitinna
eftir að Tony Chapman var rekinn, en það þurfti
mikla sannfæringu til að lokka Charlie í hljómsveitinna
þar sem að hann sá enga framtíð í
þessu bandi og vildi frekar vera með Alexis Korner Blues
Incorporated þar sem að hann fékk þó
allavegna eitthvað borgað. Síðan var bassaleikaranum
Dick Taylor skipt útaf fyrir Bill Wyman, en það var
vegna þess að Bill átti sjálfur magnara og
þá varð hann mjög eftirsóttur , Bill
var sex árum eldir en hinir giftur og átti eitt barn
og hafði verið í nokkrum hljómsveitum áður.

1963
Í byrjun 1963 þá höfðu þeir endanlega
sagt skilið við Alexis Korner Blues Incorporated , og 14 janúar
1963 spiluð Brian Jones, Mick Jagger , Keith Richards, Ian Stewart
, Bill Wyman og Charlie Wtts í fyrsta skipti saman sem hljómsveitin
The Rolling Stones í Flamingo Club í Soho London.
Og í febrúar sama ár þá hófu
þeir 8 mánaða farsælan tónleikaferil
í Crawdaddy Club þar sem að þeir stuttu seinna
hittu Andrew Loog Oldham sem hafði verið blaðafulltrúi
The Beatles en var núna að leita sér af hljómsveit
til að gerast umboðsmaður fyrir, hann var aðeins 19
ára gamall og hann sá í The Rolling Stones einhverja
andhverfu The Beatles sem höfðu nýverið hafið
sinn glæsta feril.
Andrew vildi skapa ýmind fyrir Stones sem ruddalega og hættulega
unga menn, unga menn sem að mæður vildu ekki að
dætur þeirra færu að koma með heim, þetta
átti að vera andhverfa The Beatles sem voru ímynd
snyrtimennsku og prúðbúnir ungir menn. Það
var aðeins eftir að gera eina meðlima breytingu á
hljómsveitinni þar sem að Andrew fannst Ian Steward
ekki passa inní þessa ýmind sem hann var að
reyna að skapa með Stones og þá var hann beiðin
um að yfirgefa hljómsveitina og upp frá því
þá spilaði Ian á píano á bak
við hljómsveitina og á öllum þeirra tónleikum.
Í maí 1963 komust Stones á samning hjá
Decca ( þar sem að Dick Row vildi ekki gera önnur mistök
með að ráða þá ekki því
hann hafði stuttu áður hafnað The Beatles !! )
10 maí fer fyrsta upptaka þeirra fram í Olympic
Studio og er Andrew upptökustjóri þó að
hann hafði aldrei komið nálagt því áður.
Og 7 júní gáfu þeir út sýna
fyrstu smáskífu "Come On / I Want To Be
Loved" smáskífan fór hæst
í 21 sæti breska vinsældarlistans og sama dag komu
þeir í fyrsta skipti fram í bresku sjónvarpi
í tónlistarþættinum Thank Your Lucky Stars,
þar sem að upptökustjórinn ráðlagði
Andrew að losa sig við þennan munnstóra og ljóta
söngvara !
Andrew bókaði þá síðan 11 ágúst
á National Jazz And Blues Festival í Richmond, og 29
september leggja þeir upp í sýna fyrstu tónleikaferð
um England með Everly Brothers og Bo Diddley.
1 nóvember er önnur smáskífa þeirra
gefin út "I Wanna Be Your Man / Stoned"
og nær hún hæst í 12 sæti á
breska vinsældarlistanum. I
Wanna Be Your Man var lag samið af Lennon / McCartney,
sem að The Rolling Stones höfðu hitt úti á
gótu og spurt þá af því hvort að
þeir gætu ekki lánað sér eitthvað
lag sem að þeir ættu til, Lennon og McCartney brugðu
sér aðeins út í horn , á meðan
Stones voru að æfa sig , og kláruðu lagið
og létu síðan Stones fá það.
1964
6 janúar fara The Rolling Stones í tónleikaferð
um England með The Ronnettes og eru núna orðnir aðal
númerið. 21 febrúar er smáskífan "Not
Fade Away /Little By Little" gefin út , hún
nær hæst í 3 sæti á breska vinsældarlistanum.
16 apríl er fyrsta LP plata The Rolling Stones gefin út
í Englandi "The Rolling Stones"
hún fer hæst í 1 sæti breska listans.
1 júní fara þeir í sína fyrstu tónleikaför
til Ameríku og er þeim haldið í gíslingu
af aðdáendum á hótel herbergi í NYC,
5 júní byrjar tónleikaferðin um Ameríku.
12 júní er blaðamannafundur brotin upp af lögreglunni
í Chicago þar sem að þeir héldu fundinn
úti á miðri götu og stoppuðu alla bílaumferð
, þeir færðu sig upp á gangstétt.
16 júní urðu Stones að fljúga til baka
til Englands þar sem að þeir höfðu einu ári
áður bókað sig á tónleika í
Oxford þegar þeir voru nánast óþekktir,
þeir vildu standa við þessa bókun þó
að þóknunin hafi aðeins verið 100 pund og
það kostaði þá 1.500 pund að fljúga
frá Ameríku. Þeir ollu uppþotum í
Englandi þegar þeir komu til baka þar sem að
það var fjöldin allur af öskrandi aðdáendum
að taka á móti þeim.
26 júní er smáskífan "It´s
All Over Now / Good Times Bad Times" gefin út
í Englandi og er fyrsta smáskífa Stones sem fer
í 1 sæti breska listans.
8 júlí birtust óvænt 3 meðlimir The
Rolling Stones í útgáfu partý The Beatles
þar sem að þeir voru að halda upp á útgáfu
myndar sinnar A Hard Day´s Night, en meðlimir Stones voru
líka að halda upp á það að þeir
væru núna í fyrsta sæti smáskífulistans
í Englandi.
24 júlí verður allt vitlaust á tónleikum
Stones í Blackpool, sem endaði með því
að Stones þurftu að hætta að spila og flúðu
af sviðinu undan æstum aðdáendum.
Aftur 3 ágúst enda tónleikar Stones með uppþotum
og á tónleikaferð um Holland 8 ágúst
er allt brotið og bramlað í tónleikahöllinni
í Hague svona gengu fyrir sig allir tónleikar Stones
þetta árið.
10 september eru The Rolling Stones valdir vinsælasta hljómsveit
í Englandi og lagið "Not Fade Away"
valið besta lagið af lesendum Melody Maker.
20 október halda Stones fyrstu tónleika sína
í Olympia leikhúsinu í París og þeir
enduðu með uppþotum þar sem allt var brotið
og bramlað.
23 október flugu Stones til Ameríku í sýna
aðra tónleikaför þangað, og 25 október
komu þeir fram hjá Ed Sullivan.
13 nóvember er smáskífan "Little
Red Rooster / Off The Hook" gefin út og fer í
fyrsta sæti breska listans.

1965
6 - 8 janúar héldu Stones í stutta tónleikaferð
til Írlands og 15 janúar er önnur LP plata þeirra
gefin út í Englandi "Rolling Stones Nr.2"
hún fer í fyrsta sæti breska listans.
17 janúar fara þeir til Ameríku í upptökur
og 21 janúar halda þeir í tónleikaferð
til Ástralíu og Nýja Sjálands þar
sem að einn aðdáandi selur tóma gosflösku
á 5 pund þar sem að hann segir að Mick Jagger
hafi komið við hana!
16 febrúar halda þeir til Singapore og daginn eftir til
Hong Kong. 26 febrúar er smáskífan "Last
Time / Play With Fire" gefin út í Englandi
og fer í fyrsta sæti listans.
5 mars halda þeir í tónleikaferð um England
með The Hollies og fara síðan í stutta ferð
um Skandinavíu.
9 apríl koma þeir fram í sjónvarpsþættinum
Ready Steady Go og 11 apríl koma þeir fram á NMB
tónleikum á Wembley. 17 - 18 apríl halda þeir
til Parísar og 22 apríl fara þeir í sinn
3ja túr til Ameríku og byrja í Montreal, 13 maí
taka þeir upp "Satisfaction" í
LA og 15 - 18 júní halda þeir í stuttan
túr um Skotland og 24 - 19 um Skandinavíu.
Í júlí er fjórða LP plate Stones gefin
út í Ameríku "Out Of Our Heads"
og 7 júlí fer smáskífan "Satisfaction"
í fyrsta sæti í Ameríku.
23 júlí eru þrír meðlimir Stones dæmdir
til að borga sekt fyrir að hafa pissað á almannafæri
þar sem að þeim var neitað um að nota salerni
á bensínstöð í Englandi þá
ákváðu þeir að pissa fyrir utan bensínstöðina
og eigandinn kærði þá.
20 ágúst er smáskífan "Satisfaction
/ The Spider And The Fly" gefin út í Englandi
og fer í fyrsta sæti breska listans. 24 ágúst
hitta meðlimir Stones, Allen Klein í fyrsta sinn.
28 ágúst er það gefið út að
Allen Klein verði til að byrja með aðstoðar umboðsmaður
Stones og að ráðist verði í gerð 5 kvikmynda
með þeim í á næstu 3 árum.
3 - 5 september halda þeir í ferð til Írlands
og 29 október halda þeir í sína fjórðu
tónleikaferð til Ameríku. 22 október er smáskífan
"Get Off My Cloud / The Singer Not The Song"
gefin út í Englandi og fer í fyrsta sæti
listans. í nóvember er LP platan "December´s
Children (And Everybody´s )" gefin út í
Ameríku.

1966
1 janúar koma Stones fram í Ready Steady Go og 4 febrúar
er smáskífan "19th Nervous Breakdown /
As Tears Go By" gefin út í Englandi og
fer hæst í annað sæti listans. 12 febrúar
fljúga þeir til Ameríku og daginn eftir koma þeir
fram í þætti Ed Sullivan. 18 febrúar halda
þeir í tónleikaferð til Ástralíu
og byrja í Sydney síðan þar á eftir
í Evrópu túr.
1 maí taka þeir þátt í tónleikum
á Wembley á vegum NME.
13 maí er smáskífan "Paint It Black
/ Long Long While" gefin út í Englandi
og fer í fyrsta sæti listans.
Í júní kemur LP platan "Aftermath"
út í Ameríku og sama mánuð fer smáskífan
"Paint It Black" á toppinn í
Ameríku. 22 júní höfða Stones málaferli
á hendur 14 hótelum í NYC þar sem að
þau höfðu meinað þeim um bókanir og
þar með skaðað mannorð þeirra!
24 júní halda þeir í sína fimmtu
tónleikaferð til Ameríku til 28 júlí.
10 september koma þeir aftur fram í sjónvarpsþættinum
Ready Steady Go. 12 september halda þeir í tónleikaferð
til Þýskalands þar sem að allt fer í
bál og brand þar sem að það verða uppþot
á öllum tónleikum sveitarinnar.
29 september er smáskífan "Have You Seen
Your Mother Baby / Who´s Driving Your Plane" gefin
út í Englandi og fer í 5 sæti, sama dag
hefja þeir tónleikaferðalag um England með Ike
and Tina Turner og Yardbirds í Albert Hall. 29 október
fara þeir aftur á stað í sína sjöttu
tónleikaferð til Ameríku og byrja í Montreal.
10 desember er Stones útnefndir besta R&B sveit Englands
af tónlistartímaritinu NME.

1967
Það er gefið út af bresku pressunni að heimssala
á Rolling Stones plötum hafi skilað 42.333.000 pundum.
13 janúar er smáskífan "Let´s
Spend The Night Together / Ruby Tuseday" gefin út
í Englandi og fer hæst í 3 sæti listans.
27 janúar er LP platan "Between The Buttons"
gefin út í Ameríku.
12 febrúar ræðst lögreglan inn á heimili
Keith Richards og gerir upptæk ólögleg fíkniefni.
25 mars hefja þeir Evrópu túr til 17 apríl.
13 apríl þurfti lögreglan í Warsaw að
dreyfa 3000 manna hóp af öskrandi aðdáendum
í burtu með táragasi eftir að þau höfðu
ekki fengið miða á tónleika Stones og létu
ílla.
10 maí eru Mick og Keith ákærðir fyrir að
hafa verið með fíkniefni á sér og sama
dag er ráðist inn í íbúð Brian
Jones og hann tekin fastur og ákærður fyrir eign
á ólöglegu fíkniefni.
27 júní er Mick Jagger fundinn sekur um eign á
ólöglegum efnum hann var settur í fangelsi yfir
nótt og daginn eftir var úrskurðað að hann
fengi 3ja mánaða fangelsisdóm og 300 punda sekt,
Keith var dæmdur í 1 ár fangelsi og sektaður
um 500 pund. 30 júní er þeir lausir úr
fangelsi eftir að trygging hafði verið greidd upp á
7000 pund fyrir þá. Þeir eiga síðan
að hafja afplánun fangelsisvistar sinnar seinna á
árinu.
Þessar ásakanir á hendur þeim vekja upp
mikil blaðaskrif í Englandi og skiptast menn í hópa
með og á móti þeim. 31 júlí
eru öllum ákærum á hendur þeirra felldar
niður.
18 ágúst er smáskífan "We
Love You / Dandelion" gefin út í Englandi
og fer hæst í 8 sæti listans.
29 september koma Stones úr sinni sjöundu Ameríku
tónleikaferð. 31 október er Brian Jones dæmdur
í 9 mánaða fangelsi en fær lausn gegn tryggingu.
27 nóvember er LP platan "Their Satanic Majesties
Request" gefin út í Ameríku og
12 desember fær Brian skilorðisbundin dóm.
15 desember er farið með Brian Jones á sjúkrahús
eftir að hann fellur niður heima hjá sér síðar
um daginn er hann útskrifaður.

1968
4 janúar heimtar háskóli í Kaliforníu
að ef nemendur ætli að nema tónlist þá
verði þeir að stúdera The Rolling Stones.
18 mars fæðist fyrsta barn Charlie Watts , Serafina Watts.
12 maí taka Stones þátt í NME tónleikum.
13 maí birtust Stones óvænt á tónleikum
í Empire Pool Wembley, þá höfðu þeir
ekki komið fram í London í næstum því
tvö ár. 21 maí er Brian Jones handtekinn og ákærður
fyrir að vera með kannabis efni á sér og er
honum sleppt með tryggingu. 25 maí er smáskífan
"Jumpin Jack Flash / Child Of The Moon"
gefin út i Englandi og fer í fyrsta sæti listans.
8 júní fer "Jumpin Jack Flash"
í fyrsta sæti í Ameríku. 26 júlí
átti að gefa út LP plötuna "Beggars
Banquet" en það varð ekkert af því
þar sem að það fór fyrir brjóstið
á sumum að það skyldi vera mynd af klósetti
framan á plötunni ! smáskífan "
Street Fighting Man" er gefin út í Ameríku
og 4 september er bannað að spila hana í útvarpi
í Ameríku, Mick Jagger segir að hann sé glaður
yfir því þar sem að síðast þegar
lag var bannað hjá þeim þá hafi það
selst í yfir milljón eintökum. 6 september kemur
Mick Jagger fram í spjallþætti David Frost. 26
september er Brian Jones sektaður um 155 pund fyrir að hafa
verið með kanabisefni. 3 október töpuðu Stones
slagnum við bæði Decca og London útgáfurnar
um að gefa út "Beggars Banquet"
með mynd af klósetti framan á. 5 desember er "Beggars
Banquet" loksins gefin út í Ameríku
og fer í annað sæti listans. 8 desember segir Keith
að hann og Mick ætli til S-Ameríku til að hitta
galdramann sem þeir eru mjög spenntir fyrir og vonast til
að sjá bæði hvítan og svartan galdur en
hann getur ekki borið fram nafnið á manninum svo að
hann kallar hann bara "Banani".
12 desember er Rock And Roll Circus tekið upp þar koma fram
auk Stones þeir Eric Clapton, The Who og John Lennon. 18 desember
fljúga Mick , Keith , Marianne og Anita til Brasilíu.

1969
4 janúar er Brian Jones hent út af hóteli í
Ceylon þar sem að hann er sagður ekki getað borgað.
Og 18 janúar eru Mick og Keith reknir úr af hóteli
í Lima Peru. 28 maí eru Mick og Marianne handtekin fyrir
að vera með ólögleg eiturefni, og sama dag er
það tilkynnt að Mick Jagger ætli að leika
í kvikmynd um Ástralsku útlagahetjuna Ned Kelly.
8 júní halda allir meðlimir The Rolling Stones fund
heima hjá Brian Jones, þar sem að honum er sagt að
hans nærvera í hljómsveitinni sé ekki lengur
óskað þar sem að hann hafi verið orðin
það langt leiddur af eiturlyfja neyslu og ekki getað
staðið lengur fyrir sínu. Daginn eftir tilkynnir Brian
að hann ætli að stofna nýja hljómsveit.
Nýr meðlimur The Rolling Stones er kynntur til sögunar
13 júní í Hyde Park, það er 20 ára
gamall gítarleikari Mick Taylor sem var í John Mayall
Bluesbreakers, um leið er tilkynnt um fría tónleika
sem Stones ætla að halda 5 júlí í Hyde
Park og þá mun nýjasta smáskifa þeirra
"Honky Tonk Women / You Can´t Always Get What You
Want" koma út hún fór síðan
í fyrsta sæti breska listans.
3 júlí finnst Brian Jones dáinn í sundlaug
sinni á sveitasetri sínu Cotchford Farm. Seinna er það
gefið út að hann hafi drukknað vegna áfengis
og eiturefna sem voru í líkama hans.
5 júlí halda Stones sína ókeypis tónleika
í Hyde Park sem þeir breyta í minningartónleika
um Brian Jones það komu 350.000 manns í garðinn.
Daginn eftir fljúga Mick og Marianne Faithful til Ástralíu
til að byrja tökur á Ned Kelly. 10 júlí
er Brian Jones grafinn. 10 ágúst fæðist Marlon
sonur Keiths.
12 ágúst er lagið "Honky Tonk Women"
í fyrsta sæti í Ameríku. 10 september er
tilkynnt um að Stones ætli að halda í stóra
tónleikaferð til Ameríku og Keith segir að "groupies"
í þessari ferð hafi aldrei verið fleiri.
7 nóvember byrja The Rolling Stones sinn sjötta Ameríku
túr með látum í LA þann fyrsta í
þrjú ár.
28 nóvember er LP platan "Let It Bleed"
gefin út og fer í annað sætið í
Ameríku.
6 desember halda Stones fría tónleika á Altamont
kappakstursbrautinni fyrir utan San Francisco. á þessum
tónleikur deyja þrjár manneskur, það
byrjar með því að svartur áhorfandi þrífur
upp byssu og miðar henni að Stones og er hann þá
gripinn af Hell´s Angels , sem eru í gæslu á
þessum tónleikum, og þeir stinga hann til bana,
Mick Jagger sér hvað gerist og byrjar að kalla á
lækni, þrátt fyrir þetta atvik þá
byrja Stones að spila aftur og seinna þegar Hell´s
Angels meðlimir byrja að berja á áhorfendum
þá kallar Keith til þeirra og segir að annað
hvort hætti þeir þessu eða að Stones hætta
að spila, þá myndar Hell´s Angels hring utan
um Stones og er líklegir til að berja þá en
þá segir Keith við forustusauðinn hjá
Hell´s Angels "Fuck You" og við það
bakka Hell´s Angels til baka og tónleikarnir halda áfram.
Tveir aðrir láta lífið þennan dag einn
hrapar til bana og keyrt er yfir annan.
15 desember eru 2500 manns viðstaddir tónleika Stones í
Saville Theatre í London. 22 desember halda Stones jólatónleika
á The Strand.

1970
London Records fara í mál við fjórar plötubúðir
í Hollywood þar sem að þær voru að
selja bootleg af tónleikum Stones í Ameríku á
plötu sem kölluð var "Liver Than You´ll
Ever Be".
11 mars er frumsýnd mynd Franska kvikmyndagerðarmannsins
Luc Godard´s "One Plus One", þar sem að
Stones er fylgt eftir við upptökum á laginu "Sympathy
For The Devil".
30 júlí segja Stones upp öllum samningum við
Allen Klein og tilkynna honum um að hann hafi ekkert meira með
hljómsveitina að gera. 1 ágúst er myndin
Performance frumsýnd með Mick Jagger og Anita Pallenberg.
15 ágúst tilkynna Stones um nýstofnað plötuútgáfufélag
sitt sem ber sama nafn og hljómsveitin.
30 ágúst hefja Stones sinn fyrsta Evrópu túr
í þrjú ár, þeir byrja í Svíþjóð
og enda í Amsterdam 9 október. það gekk á
miklu í þessum túr þar sem að alls staðar
sem þeir spiluðu urðu uppþot og í Róm
var Mick sekktaður um $1200 fyrir að berja ljósmyndara.
En í þessum túr þá voru Stones með
sér svið sem var öllum tækjum búið
og var það flutt á milli staða sem var nýjung
í þá daga.
8 september er LP platan "Get Yer Ya Ya´s Out"
live plata gefin út í Ameríku.
7 október er kvikmyndin Ned Kelly frumsýnd og 7 nóvember
er sólo skífa Mick Jagger "Memo To Turner
/ Natural Magic" gefin út en þetta eru
lög úr myndinni Performance.
6 desember er tónleikamyndin Gimme Shelter frumsýnd
um tónleika Stones í Ameríku.

1971
Í janúar 1971 voru allir meðlimir Stones búnir
að ákveða það að flytja frá Englandi
og setjast að í suður Frakklandi vegna þess að
skattskyldur þeirra voru að fara með þá.
Þeir vildu komast undan þessum gríðalegu miklum
sköttum sem að þeir þurftu að borga. Þeir
gáfu það út að framvegis myndu þeir
taka upp allar sína plötur í suður Frakklandi
og allar eigur The Rolling Stones í Englandi myndu verðar
leigðar út og þar með talið sveitasetur Mick
Jaggers og færanlega upptökuverið þeirra sem
var innbyggt í rútu. 4 janúar er kvikmyndin Performance
frumsýnd í Englandi. 6 janúar fæðist
dóttir Mick Taylor. 4 mars halda Stones í kveðjutónleika
för um England áður en þeir flytja til suður
Frakklands. 1 apríl er Marshall Chess 29 ára sonur stofnanda
Chess records, ráðin sem forstjóri Rolling Stones
Records og síðan 6 apríl undirrita Stones dreifingarsamning
við útgæfufélögin Atlantic, Warner Reprise
og Elektra.
13 apríl er smáskífan "Brown Sugar
/ Bitch / Let It Rock" gefin út í Englandi
og fer í 2 sæti listans.
23 apríl er LP platan "Sticky Fingers"
gefin út, fyrsta breiðskífa þeirra sem er
gefin út undir þeirra nýstofnaða útgáfufélags
Rolling Stones Records. Plötuumslagið er hannað af Andy
Warhol og er það með raunverulegum rennilás.
Gamla útgáfufélag Stones , Decca gefur út
LP plötuna "Stone Age". 12 maí
giftast Mick Jagger og hans nýja kærasta Bianca í
St. Tropez.
23 júlí fara Stones í málaferli við
sinn gamla umboðsmann Allen Klein upp á $7,5 milljónir
og ásaka hann um að hafa svínað á sér.
19 ágúst birtist 150.000 orða viðtal við
Keith í Rolling Stone.
27 ágúst gefur Decca út LP plötuna "Gimme
Shelter", önnur hliðin er með samansafn
af gömlum lögum en hin með tónleikaupptökur
frá síðustu tónleikum þeirra í
Albert Hall.
2 september fara allir meðlimir Stones og faðir Brian Jones
í mál við Andrew Oldham og Eric Easton, þar
sem að þeir ásaka þá um að hafa
gert leynisamning við Decca 1963 um að þeir tveir fengju
14% í höfundarlaun á meðan Stones fengu aðeins
6% og það á sama tíma þegar Andrew og
Eric fengu líka 25% af allri innkomu Stones fyrir að vera
umboðsmenn þeirra. Eins fara þeir í mál
við Allen Klein þar sem að þeir segja að þeir
hafi verið sannfærðir til að skrifa undir samning
um að allar tekjur af lögum þeirra í norður
Ameríku myndu fara inn í fyrirtæki sem hét
Nanker Phelge Music Inc. sem að þeir héldu að
þeir ættu en raunin var sú að Allen Klein átti
fyrirtækið.
21 október eignast Mick Jagger dóttur og í Nóvember
fara Stones til LA til að undirbúa tónleikaferð
um Ameríku.

1972
16 febrúar er Shirley Watts , konan hans Charlie Watts , handtekin
á flugvellinum í Nice þar sem að hún
barði tollþjón, hún var síðan dæmd
seinna í 15 daga skilorðisbundin dóm.
14 apríl er smáskífan "Tumblin Dice
/ Sweet Black Angel" gefin út í Englandi
og fer hún í fimmta sæti á Breska listanum.
17 apríl eignast Keith og Anita Pallenberg sína aðra
dóttir sem er skýrð Dandelion.
26 maí er LP platan "Exile On Main Street"
gefin út og fer hún á toppinn bæði
í Englandi og Ameríku. 3 júní byrjar sjöunda
tónleikaferð Stones um Ameríku í Vancouver
Kanada og 26 júlí spila þeir í Madison
Square Garden á afmælisdegi Mick Jaggers.
Í júlí í Montreal er einn af tækjabílum
Stones sprengdur í loft upp af aðskilnaðarsinnum á
sama tíma og lögreglan er að leita af sprengju sem
átti að vera falin undir sviðinu.
7 september eru Charlie Watts og Bill Wyman dregnir fyrir dómara
í Frakklandi þar sem að þeir voru ákærðir
fyrri að hafa verið með dóp heima hjá Keith.
23 nóvember fljúga meðlimir Stones til Jamaica til
að taka upp lög á næstu plötu sína
"Goats Head Soup". 2 desember er gefin
út handtökuskipun á Keith og Anita fyrir að
vera með heroin.
4 desember eru allir meðlimir Stones hreinsaðir af ákærum
um að hafa verið með hass og heroin í húsi
Keith, þar sem að fimm vitni saksóknara sögðu
að þau hefðu öll verið þvinguð til
að gefa falskan framburð á móti Stones.
23 desember verður mikill jarðskjálfti í Nicaragua,
og Mick og Bianca fljúga þangað til að reyna
að finna foreldra Bianca, þau finnast eftir þrjá
daga á lífi.

1973
8 janúar halda Stones fjáröflunartónleika
í LA Forum til að safna fé til uppbyggingar í
Nicaragua það safnast 350.000 pund.
8 febrúar byrjar túr um Ástralíu og 29
apríl gefur Decca út gamla upptöku með Stones
af laginu "Sad Day".
26 júní voru Keith og Anita handtekin á heimili
sínu í Chelsea og ákærð fyrir að
vera með cannabis, mandrax og heroin í fórum sínum.
Keith var líka ákærður fyrir að vera með
byssu og skotfæri, hann var síðan dæmdur til
að borga 275 pund í sekt en Anita slapp við dóm.
27 júní voru Stones gerðir brottrækir af Londonderry
House Hotel í Hyde Park Corner vegna þess að Keith
hafði sofnað út frá sígarettu og kveikt
í herberginu sínu.
Í ágúst rís upp ágreningur vegna
útgáfu Stones á lagi sínu "Starfucker"
þar sem að fram kemur í í texta lagsins "Giving
Head To Steve Mcqueen"
, titil lagsins er breytt í "Star Star"
og það er tryggt að Steve Mcqueen fer ekki í
mál við útgáfufélagið. BBC bannar
báðar útgáfur af laginu.
20 ágúst er smáskífan "Angie
/ Silver Train" gefin út og fer hún í
fimmta sæti í Bretlandi.
31 ágúst er LP platan "Goat´s Head
Soup" gefin út og fer hún í fyrsta
sæti í Bretlandi.
1 september - 19 október hefst Evrópu tónleikaferð
Stones í Austurríki þeir spila í Þýskalandi,
Englandi, Svíþjóð, Danmörku Hollandi
og Belgíu.

1974
Í janúar er Keith fundinn sekur um að hafa verið
með cocaine í bíl sínum sem fannst þar
eftir að hann hafði klesst hann í árekstri í
september á síðasta ári.
14 apríl er kvikmyndin Ladies And Gentlemen The Rolling Stones
frumsýnd. Í júní vinnur Keith Richards
að sóloplötu Ronnie Wood og Mick Jagger kemur fram
á sóloplötu Billy Prestons.
26 júlí er LP platan “It´s Only
Rock ´N´ Roll” gefin út í
Englandi og fer hún í fyrsta sæti breska listans.
Hugmynd af titillagi plötunar vaknaði í jam session
heima hjá Ronnie Wood þar sem að David Bowie var
með bakraddasöng. Í nóvember fer hún
á toppinn í Ameríku.
14 desember tilkynnir Mick Taylor að hann ætli að yfirgefa
Stones.
28 desember er það tilkynnt af gömlu útgáfufélagi
Stones , London Records í Ameríku að þeir
ætli að halda upp á 10 ára útgáfuafmæli
Stones með því að endurgefa út 17 plötur
með Stones með slagorðunum “World´s
Greatest Rock´N´ Roll Band – A London Recording
Where It All Began”
1975
14
apríl tilkynnir Mick Jagger að Ronnie Wood mun taka við
stöðu gítarleikara af Mick Taylor í væntalegum
Ameríkutúr Stones hann verður að láni
frá The Faces.
1 maí kynna Stones Ameríkutúrinn sinn með
því að koma akandi niður 5 tröð í
NYC uppi á pall á vörubíl spilandi “Brown
Sugar”. 1 júní hefst síðan
áttundi Ameríkutúr Stones og stendur til 2 ágúst
með viðkomu í 27 borgum í Ameríku þeir
ferðast á milli staða í Boeing 707 , þeir
eru með með sér 25 tonna tilbúið svið
sem er eins og blóm í laginu og við upphafstóna
Keith á laginu “Honky Tonk Women”
þá opnast blómið og Stones koma í ljós.
Á meðan lagið “Star Star”
er leikið þá sprettur upp uppblásinn gervi
limur sem Mick Jagger sest á eins og hann sé á
hestbaki.
Í miðjum túrnum er LP platan “Made
In The Shade” gefin út.
22 júní kemur Eric Clapton fram með Stones í
Madison Square Garden og spilar með þeim “Sympathy
For The Devil”.
Í september er það síðan loksins ákveðið
hver mun endanlega taka við af Mick Taylor í Stones, og
eftir hæfnispróf sem að menn eins og Jeff Beck og
Peter Frampton , er það loksins ákveðið að
Ronnie Wood mun taka við. Upptökur byrja á nýrri
plötu.


1976
Í
febrúar er sóloplata Bill Wymans gefin út "Stone
Alone" og 28 febrúar er það opinberlega
gefið út að Ronnie Wood hafi gengið í The
Rolling Stones.
20 apríl er LP platan "Black
And Blue" gefin út, hún fer í annað
sætið á breska vinsældarlistanum, sama dag
er smáskífan "Fool To Cry / Crazy Mama"
einnig gefin út.
Síðan halda þeir í Evróputúr.
1 maí taka Stones upp fjögur kynningarmyndbönd af
lögunum "Fool To Cry" , "Crazt Mama"
, "Hot Stuff" og "Hey Negrita". 22 maí
spila Stones 6 kvöld í röð í Earls Court
í London fyrir fullu húsi hvert kvöld.
Í byrjun júní halda Stones þrenna tónleika
í París sem voru hljóðritaðir og síðar
gefnir út á LP plötu þeirra "Love
You Live".
21 ágúst koma Stones fram á útihátíðinni
Knebworth í Englandi.

1977
27 febrúar
eru Keith og Anita Pallenberg handtekin í Toronto með ólögleg
eiturefni í fórum sínum þar sem að
Stones voru að spila á litlum tónleikastað.
15 september er LP tónleikaplatan "Love You Live"
gefin út og fer hún í þriðja sæti
í Bretlandi. Plötuumslagið er hannað af Andy Warhol
og Stones halda útgáfupartý í Trax í
NYC.

1978
Í
apríl fer Mick Jagger til Jamaica og fær tónlistarmanninn
Peter Tosh til að skrifa undir samning við Rolling Stones
Records.
5 maí taka Stones upp kynningarmyndbönd fyrir lögin
"Miss You" , "Respectable" og "Far
Away Eyes".
10 maí er smáskífan "Miss You /
Far Away Eyes" gefin út og nær þriðja
sæti í Englandi, Stones byrja æfingar fyrir væntanlega
tónleikaferð sína í Ameríku. 14 maí
sækir Bianca Jagger um skilnað frá Mick.
1 júní er LP platan "Some Girls"
gefin út og fer hún í annað sæti breska
listans. Stuttu eftir útgáfu hennar, þá
hóta nokkrar konur sem mynd var af framan á plötunni
að fara í mál við útgáfufélagið
Atlantic, konur eins og Lucille Ball, Raquel Welch og Liz Taylor,
stuttu seinna er umslaginu breytt. Upprunalega átti að
kalla þessa plötu "Some More Fast Numbers".
10 júní byrjar tónleikaferð Stones um Ameríku
og stendur til 26 júlí. 10 júlí dettur
Bill Wyman niður af sviðinu í St. Paul og 21 júlí
kemur þyrla með Linda Ronstadt til að syngja með
Stones í Tucson.
13 júlí spila Stones stærstu innitónleika
sem haldnir höfðu verið með 80.000 áhorfendum.
7 október koma Stones fram í Saturday Night Live og
eru kynntir af Dan Aykroyd. 23 október er Keith dæmdur
í eins árs fangelsi fyrir að vera með heroin
í Toronto, honum er seinna gefin séns á að
halda góðgerðartónleika fyrir blinda í
staðin fyrir að fara í fangelsi. Í nóvember
gefur Rolling Stones Records út lagið "Don´t
Look Back" með Peter Tosh´s og Mick Jagger
sem bakrödd.
29 nóvember er smáskífan "Shattered
/ Everything´s Turning To Gold" gefin út
í Ameríku.
12 desember er sóló smáskífa Keiths af
laginu "Run Rudolph Run" gefin út.

1979
Í
apríl halda Stones góðgerðartónleika
fyrir blind börn í Oshawa í Kanada, The New Barbarians
spila líka sem er band sem að Keith og Ronnie eru í.
Síðan fara Keith og Ron í tónleikaferð
með þeim.
22 apríl halda síðan Stones síðari góðgerðartónleika
í Toronto. Í maí gefur Ron Wood út sína
fyrstu sóloplötu "Gimme Some Neck".
Í júlí hefja Stones upptökur á nýju
efni í París og 11 ágúst spila The New
Barbarians á útitónleikum á Knebworth
í Englandi með Led Zeppelin.

1980
23
j úní er smáskífan "Emotional
Rescue / Down In The Hole" gefin út í
Englandi og fer hæst í 9 sæti breska listans. 26
júní er LP platan "Emotional Rescue"
gefin út og hún fer í fyrsta sæti breska
listans. Stones halda útgáfupartý á Danceterian
í NYC og Charlie Watts missir af flugi til NYC til að taka
þátt í útgáfunni þá
er því strax slegið upp að Stones séu
að hætta og að Charlie hafi sagt að hann hati Rock
´N´Roll.
"Emotional Rescue" fer beinnt á
toppinn í Ameríku og er þar samfellt í
sjö vikur. Í júlí taka Stones upp video
við lagið "She´s So Cold"
í NYC.
10 september er smáskífan "She´s
So Cold / Send It To Me" gefin út og fer hún
hæst í 33 sæti á breska listanum sem er
stærsta flopp Stones hingað til ! 16 september er hin umdeilda
mynd "Cocksucker Blues" frumsýnd í NYC. 1
október segir Earl McGrath af sér sem forstjóri
Rolling Stones Records.
5 nóvember eru Mick og Bianca formlega skilin.
27 desember fer Mick til Peru til að taka þátt í
þriggja mánaða kvikmyndatöku á Fitzcarraldo
mynd leikstjórans Werner Herzog, sökum anna þá
klárar hann aldrei tökur á þessari mynd.

1981
10 ágúst
er smáskífan "Start Me Up / No Use In Crying"
gefin út og fer hún í hæst í sjöunda
sæti breska listans. Og 31 ágúst er LP platan
"Tattoo You" gefin út og fer hún
í annað sæti breska listans.
25 september hefst 10 tónleikaferð Stones á JFK
Stadium í Philadelphia um Ameríku þeir túra
í 50 daga.
17 október koma 146.000 manns á tónleika þeirra
í Candlestick Park í San Francisco þar sem að
The Beatles héldu sína síðustu tónleika
15 árum áður !

1982
26 maí
halda Stones í Evróputúr og halda auk þess
nokkra tónleika á Wembley í London:
1 júní er tónleikaplatan "Still
Life" frá tónleikaferð Stones í
Ameríku, gefin út og fer hún hæst í
4 sæti breska listans.

1983
20 ágúst
eignast Ronnie Wood og Jo Howard strák sem skírður
er Tyrone.
25 ágúst skrifa Mick Jagger og Keith undir útgáfusamning
við CBS upp á $28 milljónir og þeir skuldbinda
sig til að gefa út 4 studio plötur.
Í október er smáskifan "Undercover
Of The Night / All The Way Down" gefið út
og fer í 11 sæti breska listanns. 7 nóvember er
LP platan "Undercover" gefin út
og fer í þriðja sæti breska listans.

1984
21 febrúar hittir Bill Wyman, Mandy Smith í fyrsta skipti
hún var 13 ára gömul.
2 mars eignast Mick og Jerry Hall stelpu sem skírð er Elizabeth
Scarlet.
30 júní kemur út topplag með Mick Jagger
og Michael Jackson "State Of Shock"

1985
Í febrúar taka Stones upp LP plötuna "Dirty
Work" í París og 19 febrúar þá
gefur Mick Jagger út sína fyrstu smáskífu
af væntanlegri LP plötu sinni "Just Another
Night / Turn The Girl Loose" undir merkjum CBS og sama
dag er fyrsta sóloplata Mick gefin út "She´s
The Boss".
20 mars Kemur Keith fram á upptökum á plötu
Nona Hendryx´s.
Í maí er önnur smáskífa af sólóplötu
Micks gefin út "Lucky In Love / Running Out Of
Luck".
29 júní taka Mick og David Bowie upp lagið "Dancing
In The Street" fyrir Live Aid og seinna um daginn taka
þeir upp myndband við lagið.
13 júlí kemur Mick Jagger einn fram á Live Aid
í Ameríku og seinna um daginn koma Keith og Ron fram
með Bob Dylan. 15 júlí tekur Mick upp video fyrir
lagið sitt "Hard Woman" í LA
og 8 ágúst tekur Keith þátt í upptökum
með Phantom , Rocker & Slick í NYC.
12 október taka Keith og Ron upp lag U2 "Silver
And Gold" fyrir Artists United Against Apartheid.
18 nóvember er Charlie Watts ásamt sínu Big Band
með tónleika í Ronnie Scott Club í London.
12 desember deyr Ian Stewart sjötti Stonsarinn úr hjartaáfalli
í London.

1986
23 janúar er Keith fyrsti kynnirinn í höll frægðarinar
Rock´N´Roll Hall Of Fame, þar sem að hann afhendir
Chuck Berry verðlaun og seinna um kvöldið taka hann og
Ron þátt í jammi með öðrum súperstjörnum.
7 febrúar taka Stones upp video fyrir lagið "Harlem
Shuffle" í NYC.
23 febrúar koma Stones saman á óvæntum
tónleikum í 100 Club í London og halda tónleika
til heiðurs Ian Stewart, meðal gesta á sviði með
þeim eru Eric Clapton, Jeff Beck, Pete Townshend og Jack Bruce,
þetta er í fyrsta sinn í næstum því
fimm ár sem Stones spila saman opinberlega.
25 febrúar fá Stones afhend Grammys Lifetime Achievement
verðlaunin úr hendi Eric Claptons.
26 febrúar er smáskífan "Harlem
Shuffle / Had It With You" gefin út í
Englandi og náði hún hæst 13 sæti breska
listans. 24 mars er LP platan "Dirty Work"
gefin út og nær hún hæst í 4 sæti
breska listans. Ekki eru nein tónleikaplön hjá
Stones þetta árið.
1 maí taka Stones upp video fyrir lagið "One
Hit To The Body" og Mick og Keith grínast með
það hvað á að vera mikil spenna á
milli þeirra tveggja. Í júní er gefið
út lag með Mick Jagger "Ruthless People"
úr samnefndri kvikmynd. 25 júní kemur Ron Wood
fram með Chuck Berry á tónleikum á Ritz hótelinu
í NYC.
7 - 9 júlí er Keith upptökustjóri fyrir
Aretha Franklin þar sem að hún syngur Stones lagið
"Jumpin Jack Flash" Ronnie og Keith spila
líka á þessari upptöku. 19 júlí
heldur Charlie Watts tónleika með sinni hljómsveit
í Richmond leikhúsinu í London. 26 september
er loksins gefið út video með Mick Jagger á
laginu "Running Out Of Luck".
16 október er Keith ráðinn sem tónlistarráðunautur
fyrir væntanlega kvikmynd með Chuck Berry, Hail, Hail Rock´N´Roll.
Eftir viku æfingar heima hjá Chuck halda þeir tónleika
í Fox leikhúsinu í St. Louis með stjörnum
eins og Eric Clapton, Julian Lennon og Linda Ronstadt.
29 nóvember byrjar tónleikaferðalag Charlie Watts
og hans hljómsveitar um Ameríku með 33 hljómsveitarmeðlimum.
1 desember er tónleika plata með hljómsveit Charlie
Watts gefin út af Columbia, "Charlie Watts Orchestra
Live At Fulham Town Hall".

1987
21 janúar kynnir Keith, Aretha Franklin inn í Rock´N´Roll
Hall Of Fame. Í mars lenda Mick og Keith saman eftir að
Mick gefur það út að hann ætli sér
að fara í tónleikaferðalag með sinni hljómsveit
og kynna sína sóloplötu, síðan heldur
Mick áfram upptökum á sinni annari sóloplötu
í NYC.
17 júlí undirritar Keith samning við Virgin Records
um sólóferil sinn, og 20 júlí tekur Mick
upp video fyrir lagið sitt "Let´s Work"
í NYC, og annað video er tekið upp í London
fyrir lagið "Say You Will". 15 ágúst
byrjar Keith á upptökum á sinni fyrstu sóloplötu
í Montreal. 1 september er smáskífan hans Micks
"Let´s Work" gefin út af Columbia,
og 14 september kemur út önnur sóloplata Micks
"Primitive Cool". Í október
heldur Keith áfram upptökum á sinni sólóplötu
og með honum eru Mick Taylor og Johnnie Johnson.
20 október tekur Mick upp video fyrir lagið sitt "Throwaway"
í LA, og er lagið síðan gefið út
3 nóvember.
4 - 25 nóvember heldur Ron Wood í tónleikaferðalag
með Bo Diddley um Ameríku. og 19 desember opnar Ron næturklúbb
á Miami Beach sem hann kallar Woody´s On The Beach.

1988
20 janúar kynnir Mick Jagger The Beatles inn í Rock´N´Roll
Hall Of Fame og kallar þá "The Four Headed Monster"
seinna um kvöldið tekur hann þátt í jammi
með Dylan, Springsteen, Elton John og George Harrison.
26 janúar er smáskífan "Say You
Will" af sóloplötu Mick Jaggers gefin út,
og í febrúar byrja æfingar fyrir væntanlega
tónleika Mick Jaggers um Japan. 2 -15 mars halda Ron og Bo
Diddley tónleika í Japan, og 15 - 28 mars kemur svo
Mick Jagger til Japans með sinni hljómsveit. Stones höfðu
aldrei komið til Japans til tónleikahalds !
16 mars kemur Tina Turner fram með Mick í Tokyo tvö
kvöld í röð fyrir framan 50.000 manns.
11 apríl byrjar Keith á þriggja vikna sólóupptökum
í Air Studio í Monstserrat.
18 maí hittast meðlimir Stones í London til að
ræða framtíð The Rolling Stones.
31 ágúst tekur Keith upp video fyrir lagið "Take
It So Hard" í LA. 22 september - 5 nóvember
er Mick á tónleikaferðalagi um Ástralíu.
26 september er fyrsta sólóskífa Keith "Talk
Is Cheap" gefin út af Virgin Reckords, og 8 október
kemur Keith fram í Saturday Night Live og tekur tvö af
sínum lögum "Take It So Hard" og "Struggle".
24 október er fyrsta smáskífa Keith "Take
It So Hard" gefin út.
24 nóvember heldur Keith í þriggja vikna tónleikaferð
með hljómsveit sinni X-Pensive Winos, þeir fara til
12 borga og halda 15 tónleika í Ameríku seinna
fær Keith Pollstar verðlaun fyrir þennan túr.

1989
18 janúar eru The Rolling Stones kynntir inn í Rock´N´Roll
Hall Of Fame af Pete Townsheand, og viðstaddir eru Mick, Keith,
Ron og Mick Taylor. Fjarvera Bill Wyman kemur af stað orðrómi
um að hann sér hættur í Stones og að Mick
Taylor sé genginn aftur í hljómsveitina, seinna
um kvöldið gera Stones allt vitlaust í salnum þegar
þeir taka lögin "Honky Tonk Women" og
"Start Me Up".
Í maí opnar Bill Wyman Sticky Fingers matsölustað
í London, og Keith gefur út video við lagið
"Make No Mistake" og seinna í mánuðinum
er hann heiðraður með "Living Legend Award".
Mick og Keith koma saman í studio Eddys Grant á Barbados
til að athuga hvort að þeir geti tekið upp eitthvað
nýtt efni 2 mánuðum seinna eru þeir tilbúnir
með 12 ný lög auk margra hugmynda af lögum, þeir
fara síðan í AIR studióið hans Georgs
Martins og klára upptökur á fimm vikum á
nýrri plötu sem er seinna hljóðblönduð
í London sem verður síðan seinna kölluð
"Steel Wheels".
2 júní giftist Bill Wyman sinni ungri konu Mandy Smith.
11 júlí halda Stones blaðamannafund á Grand
Central Station í NYC og kynna "Steel Weels"
plötuna og væntanlegan tónleikatúr um heiminn,
Mick Jagger heldur á ghetto blaster og spilar "Mixed
Emotions" fyrir hundruðir blaðamanna.
29 ágúst er LP platan "Steel Weels"
gefin út og nær hún hæst í annað
sæti breska listans.
31 ágúst byrja Stones sinn fyrsta tónleikatúr
í sjö á í Philadelphia þar sem að
þeir koma fram fyrir framan 55.000 manns þegar Ameríkuleggur
tónleikana er búinn þá höfðu þeir
komið fram á 70 tónleikum. Ameríku ferðin
varð gróðvænlegasta tónleikaferð sem
farinn hafði verið frá upphafi.
20 nóvember er smáskífan "Rock
And A Hard Place / Cook Cook Blues"
gefin út í Englandi og nær hæst í
63 sæti breska listans.

1990
Í janúar er það gefið út að
Stones munu halda áfram tónleikaferð sinni til Japans
og á hálftíma seljast upp hálf milljón
miðar á tónleikana.
14 febrúar byrja 10 tónleika röð Stones í
Tokyo Japan.
22 mars tilkynna Stones um Evrópulegg tónleikaferðar
sinnar sem kallaður er Urban Jungle.
18 maí byrja Stones Urban Jungle á leikvangi Fejenoord
í Rotterdam og eru haldnir 46 tónleikar í 26
borgum. 24 ágúst endar Urban Jungle á Wembley
í London.
Í nóvember byrjar hljóðblöndun á
nýrri tónleikaplötu Stones.

1991
7 - 18 janúar koma Stones saman í Hit Factory Studio
í London til að taka upp tvö bónus lög
á væntanlega tónleikaplötu sína, lögin
"Highwire" og "Sex Drive". 29
- 30 janúar er Keith framleiðandi á tveimur lögum
fyrir Johnnie Johnson´s sólóplötu, og 14
febrúar flýgur Mick til Atlanta til að byrja tökur
á nýrri kvikmynd sem hann leikur í Freejack.
1 mars er video við lagið "Highwire"
tekið upp í Brooklyn allir nema Bill eru viðstaddir
upptökur.
4 mars er smáskífan "Highwire / 2000 Light
Years From Home" gefin út í Ameríku.
2 apríl er LP tónleikaplatan "Flashpoint"
gefin út og er þriðja plata Stones undir merkjum
Sony.
10 apríl kemur Keith fram á upptöku með John
Lee Hooker á laginu "Crawling King Snake".
2 maí eru Stones heiðraðir fyrir framúrskarandi
framlag til breskrar tónlistar í London, og 21 maí
taka Stones upp video fyrir lagið "Sex Drive"
í London það er síðan bannað á
MTV.
25 október er tónleikamyndin Rolling Stones At The Max
frumsýnd í átta kvikmyndahúsum um allan
heiminn, en þar sem að hún er tekin upp í
IMAX þá eru aðeins 100 kvikmyndahús í
heiminum sem geta sýnt myndina.
19 nóvember skrifa The Rolling Stones undir útgáfusamning
við Virgin Records.

1992
15 janúar kynnir Keith, Leo Fender inn í Rock´N´Roll
Hall Of Fame, og á eftir jammar hann með Jimmy Page og
Johnny Cash.
16 janúar er kvikmyndin "Freejack" frumsýnd
í LA og Mick Jagger er viðstaddur.
18 mars byrja upptökur á næstu sólóplötu
Keith í Kaliforníu.
3 ágúst gefur Ron Wooe út sína sólóplötu
og 9 október tekur Keith upp video fyrir lagið "Wicked
As It Seems" í LA. 20 október er önnur
sólóplata Keiths "Main Offender"
gefin út af Virgin Records. 7 nóvember heldur Keith
tónleika í Argentínu með sinni hljómsveit
X-Pensive Winos fyrir framan 40.000 manns, 27 nóvember byrjar
þeir tónleikaferð um Evrópu og Keith og X-Pensive
Winos enda árið með tónleikum á gamlárskvöldi
á tónleikastað rétt hjá Times Square
í NYC.

1993
6 janúar er haldið upp á 30 ára útgáfuafmæli
The Rolling Stones, og í útvarpsviðtali við
BBC tilkynnir Bill Wyman að hann ætli sér að
hætta í hljómsveitinni.
10 janúar er Ron Wood á tónleikaferðalagi
með hljómsveit sinni í Japan og Mick Jagger gefur
út sína þriðju sólóplötu
"Wandreing Spirit" og heldur útgáfutónleika
í NYC.
17 janúar byrjar tónleikaferð Keith um Ameríku
með sinni hljómsveit. 6 febrúar kemur Mick Jagger
fram í Saturday Night Live og syngur tvö lög af sinni
sólóplötu.
20 apríl fljúga Mick og Keith til Barbados til að
byrja að semja nýtt efni á nýja Stones plötu,
Charlie kemur 10 dögum seinna. 9 júlí byrja Stones
mánaðar upptökur heima hjá Ron Wood á
Írlandi. 28 september gefur Ron Wood út tónleikaplötuna
sína "Slide On Live" og 12 október
gefur Charlie Watts út sína LP plötu "Warm
& Tender".
2 nóvember byrja Stones hljóðblöndun á
nýrri Stones plötu í Windmill Lane Studio í
Dublin, Darryl Jones spilar á bassa.
24 nóvember gefur Virkin út LP safnplötuna "Jump
Back" í Evrópu og Japan ekki Ameríku.


1994
Stones halda áfram upptökum í Dublin í byrjun
ársins og gefa síðan út LP plötuna "Woodoo
Lounge", og síðan kynna Stones fyrirhugaðan
heimstúr í NYC með þvi að þeir koma
í bát að bryggju 60 í NYC þar sem að
blaðamenn bíða þeirra.
Heimstúrinn byrjar síðan 1 ágúst með
Ameríkulegg um Canada, N og S- Ameríku og Japan, og
í millitíðinni eru þeir heiðraðir
af MTV sem Lifetime Achievement Award og einnig komast þeir
í sögubækurnar sem fyrsta hljómsveit sem
sendir út tónleika beint á Internetinu.
Þetta er í fyrsta sinn í 31 ár sem að
Bill Wyman er ekki með sem meðlimur The Rolling Stones.
Undir lok ársins eru fjórar milljónir eintaka
af "Woodoo Lounge" seldar.

1995
Árið byrjar með áframhaldandi tónleikaferðalagi
Stones um S-Ameríku þar sem að þeir höfðu
aldrei spilað áður sem Stones, áður en þeir
halda til Evróðu 30 júní þá
voru þeir búnir að fara til S-Afríku, Japans
og Ástralíu.
Tónleikaferðin endar síðan í Rotterdam
30 ágúst. Þeir gefa síðan út
tónleikaplötuna "Stripped".

1996
Allt árið eru meðlimir Stones að vinna hver í
sínum málum, Charlie Watts gefur út LP plötuna
"Long Ago & Far Away" sem er með
klassískum jazzlögum á sem snillingar eins og Cole
Porter og Duke Ellingotn hafa gert ódauðleg.
Og á heimili sínu á Jamaica þá stjórnar
Keith upptökum á plötu sem inniheldur upptökur
á hefðbundnum Rastafarian Bingi trommum.

1997
Jarry Hall á von á fjórða barni með Mick
Jagger sem verður hans sjötta , hann á fyrir tvö
barnabörn.
8 ágúst fer að spyrjast út um að Stones
séu með áætlanir um nýjan heimstúr
í sigtinu, sem er áætlað að byrji í
Chicaco 23 september og að þeirra nýja plata “Bridges
To Babylon” komi í verslanir fljótlega.
18 ágúst tilkynna Stones á blaðamannafundi
undir Brooklyn brúnni í NYC, um að nýja platan
þeirra “Bridges To Babylon” komi
í verslanir 30 september og væntanleg tónleikaferð
hefjist 23 september.
23 september hefst heimstúrinn Briges To Babylon í Chicago
fyrir framan 53.000 manns.
17 október kynnir Bill Wyman nýja hljómsveit
sem hann stofnaði The Rhythm Kings, og áætlað
tónleikaferðalag þeirra, þetta er í
fyrsta sinn sem Bill kemur fram á tónleikum eftir að
hann hætti í Stones.
8 desember eignast Jerry Hall fjórða barn þeirra
Micks í NYC, Mick sér barnið ekki fyrr en 15 desember
eftir að Stones taka smá frí frá Ameríkulegg
Bridges To Babylon túrsins.
Eftir 33 tónleika í N-Ameríku hafa Stones halað
mest inn af öllum hljómsveitum sem voru á tónleikaferðarlagi
1997. Þeir þénuðu $87 milljónir og spiluðu
fyrir 1,4 milljónir manna.

1998
5 janúar er það tilkynnt frá BBC að þeir
hafi fundið gamlar upptökur með Stones sem allir héldu
að væru glataðar, og að þær verði
hugsanlega síðar gefnar út.
23 apríl líkur Ameríkulegg Bridges To Babylon
túrnum hjá Stones í Chicago. Og þeir halda
til Evrópu.
11 júní er það tilkynnt að útaf
skattarlögum í Englandi þá munu Stones ekki
koma þangað til tónleikahalds fyrr en á næsta
ári.
11 ágúst halda þeir sýna fyrstu tónleika
í Moscow 30 árum eftir að kommúnistastjórnin
bannaði The Rolling Stones í Rússlandi.
2 nóvember er LP tónleikaplatan “No Security”
gefin út hún var hljóðrituð á
tónleikum Stones á Arena í Amsterdam Hollandi.

1999
15 janúar sækir Jerry Hall um skilnað við Mick
Jagger eftir að það verður opinbert að hann
hafi barnað 29 ára Brasilíska Supermodelið Luciana
Morad.
10 júní eru Stones sektaðir um 50.000 pund fyrir
að hafa spilað lengur en lög gerðu ráð
fyrir í næturkúbbi í London þar sem
að þeir komu saman til tónleikahalds óvænt.
9 júlí kemur út bók eftir fyrverandi kærustu
Brian Jones, þar sem að hún heldur því
fram að Brian hafi verið myrtur af smiði sem hét
Frank Thorogood eftir að þeir tveir rifust um peninga.
12 júlí gengur skilnaður Micks og Jerry Hall í
gegn eftir 29 ára samband , og er áætlað að
hún fái 10 milljónir punda við skilnaðinn
auk nokkura eigna þeirra, þau áttu fjögur
börn saman.
27 júlí er Mick dæmt faðerni barns hans og
Luciana Morad og er dæmdur til að borga henni meðlag.
13 desember var lagið “It´s Only Rock´N´Roll”
endurútgefið af unglingastjörnum og leikurum og allur
ágoði gefin til líknarmála.

2000
3 janúar er lagið “I Can´t Get No Satisfaction”
kosið besta lag af 100 bestu rokklögum allra tíma
9 janúar er Keith í baráttu til bjargar skóglendi
nálægt heimili hans í West Sussex sem hann keypti
1966. 16 janúar er það sagt í blöðum
að forsætisráðherra Breta Tony Blair, hafi mælst
gegn því við drottninguna í Englandi að
Mick Jagger yrði ekki aðlaður sökum slæms orðssporðs
sem farið hefur af honum og hans félögum í
The Rolling Stones.
25 janúar lætur Mick Jagger skrá nafnið sitt
sem skrásett vörumerki til að tryggja sér að
engvir aðrir muni gera það.
5 maí héldu Stones óvænta tónleika
á Half Moon Pub í Englandi til að heiðra minningu
Joe Seabrook sem var lífvörður Keit í 26 ár
en féll frá fyrir 4 vikum. 27 maí er Mick Jagger
viðstaddur jarðarför móður sinnar sem var
orðin 87 ára.
30 júní skráir Ron Wood sig inn á meðferðarstofnun
vegna áfengisfíknar sinnar. 1 júlí tapa
Stones málaferlum um hver eigi réttinn á tvemur
lögum sem þeir tóku upp í byrjun sjötta
áratugarins, þetta eru lögin “Love
In Vain” og “Stop Breakin Down”
sem eru í eigu ABKCO.
21 júlí er það gefið út að
Jagged Film mun hefja tökur á kvikmynd um The Rolling
Stones og að Jude Law muni fara með hlutverk Micks.
23 nóvember fara að spyrjast út fréttir að
Stones muni fara ítónleikaferðalag seint á
næsta ári og að ný breiðskífa muni
líta dagsins ljós.

2001
20 janúar fréttist það að Stones hafi
haft samband við Fatboy Slim til að aðstoða sig við
upptökur á nýrri plötu þeirra sem mun
koma út seinna á þessu ári.
29 mars fer allt í háaloft milli Micks og Keith þegar
Mick segist ekki vera tilbúinn að fara í tónleikaferð
á þessu ári þar sem að hann vill miklu
frekar vera að huga að sínu kvikmyndafélagi.
25 júní samþykkir Pete Townshend að spila
á næstu sóloplötu Mick Jaggers sem er áætlað
að verði gefin út í nóvember og er hans
fjórða plata og mun heita “Goddess In The
Doorway”.
30 ágúst segir Pete Townshend að væntanleg
sólóplata Jaggers sé hans besta plata hingað
til.
23 október segir Mick að Stones muni túra næsta
ár þegar hann hélt tónleika í Madison
Square Garden þar sem að hann tók þátt
í laugardagstónleikum af því að honum
langaði til þess og líka að gefa eitthvað
af sér til borgarinnar sem að hann hefur svo mikið
dálæti á. Mick gaf einnig út fyrstu smáskífu
af væntalegri plötu sinni lagið "God Gave
Me Everything".
16 nóvember hélt Jagger tónleika í El
Rey leikhúsinu í LA til að kynna sína næstu
LP sólóplötu, hann söng sjö lög
af henni og tvö gömul Stones lög "Respectable"
og "Miss You".
30 nóvember gáfu bæði Mick og Keith út
tilkynningu til minningar um George Harrison sem hafði andast
daginn áður, þeir sögðust báðir
sakna hans og sögðu að mikið góðmenni
hafi núna yfirgefið þetta líf.

2002
7 maí komu Stones svífandi niður til jarðar
í loftbelg í Van Cortland Park í Bronx í
NYC, til að kynna væntanlegan heimstúr sem yrði
í leiðinni 40 ára afmælishátíð
The Rolling Stones, Þeir sögðu frá því
að þeir ætluð sér að byrja í
Boston 5 september og að í þessum túr yrði
bæði spilað á stórum leikvöngum sem
og innileikvöngum og að þeir myndu líka spila
á smærri klúbbum til að komast í nánari
snertingu við áðdáendur. Áætlað
er að túrinn standi í 12 mánuði og samanstendur
af 32 tónleikum í N-Ameríku áður en
haldið verður til Evrópu og þaðan til Ástralíu,
Mexico og síðan Asíu. Þeir vonast til að
getað haldið tónleika í Kína í
fyrsta skipti á sínum ferli, og að tvöfaldur
CD "40 Licks" verður gefin út
með öllum Stones smellum auk tveggja nýrra laga frá
þeim.
9 júní er Mick Jagger aðlaðaður af Englandsdrottningu
og á að vera eftir það titlaður Sir Mick
Jagger, en Keith segist aldrei ætla að kalla hann Sir.
23 júlí deyr Royden Walter Magge III á hljómsveitaræfingu
hjá Stones, hann hafði verið meðlimur í
rótaragengi Stones í 30 ár.
19 ágúst halda Stones óvænta tónleika
í smáklúbbi í Toronto til undirbúnings
fyrir heimstúr Stones sem á að byrja 3 september
í Boston.
16 september segir Keith í viðtali við Mojo að
hann hafi orðið æfur þegar Mick hafði samþykkt
það að verða aðlaðaður það
væri ekki sæmandi Stones ímyndinni.
2 desember gefa Stones út tilkynningu um að á næsta
ári munu þeir halda tónleika í 22 Evrópskum
borgum í júní til ágúst.
18 desember fer ABKCO í mál við fyritæki sem
er að gefa út video með Stones sem inniheldur upptökur
frá 1962 - 1970, en ABKCO á allan útgáfurétt
af öllum Stones lögum frá 1962 - ágúst
1970.

2003
14 janúar eru Stones að bjóða heppnum aðdáendum
í opinbera aðdáendaklúbbi þeirra, að
eignast VIP miða á Stones tónleika í Englandi
í sumar.
15 maí er Stones leift að spila til kl: 23:30 á
tónleikum sveitarinnar á Olympic Stadium í Berlín,
þrátt fyrir að lög í Þýskalandi
segi að ekki megi vera með hávaða eftir kl: 22:00
á kvöldin.
23 maí er það gefið út að Stones munu
ekki spila fría tónleika í Toronto eins og áætlað
var að þeir myndu gera til að hjálpa borgaryfirvöldum
til að endurheimta traust á borginni eftir SARS farald
sem hefur geysað þar, ástæðan er sú
að borgaryfirvöld gátu ekki borgað það
sem þurfti til að koma tónleikunum á kortið.
4 júní hefst Evrópuleggur Licks túrsins
í Munich og endar 2 október í Zurich eftir 46
tónleika í 30 borgum.
2 október er það tilkynnt að 11 nóvember
verður gefið út 4 diska DVD sett með tónleikaupptökum
af Stones á þremur þeirra og meðal annars verða
tónleikaútgáfur af lögum sem aldrei hafi
áður verið gefið út t.d "Love
Train" , "Rock Me Baby" , "Nearness Of You"
, "Monkey Man" , " Worried About You" og "Hand
Of Fate". Fjórði DVD diskurinn inniheldur
tvær heimildarkvikmyndir af Stones bak við tjöldin
á tónleikaferð sveitarinnar 40 Licks, sem heita
Tip Of The Tongue og Licks Around The World.

Heimildir:
The Rolling Stones Chronicle, Massimo Bonanno.